Rausnarlegur styrkur

Á haustdögum færði Kvenfélag Stokkseyrar yngra stigi Barnaskólans á Eyrarbakka og Stokkseyrar rausnarlega gjöf upp á 300.000 kr. Styrkurinn var tileinkaður kaupum á bókum á skólabókasafnið, spilum og þroskandi leikföngum fyrir nemendur okkar í 1. – 6. Bekk.
Sagan á bakvið styrkinn er skemmtileg því á Bryggjudögum tóku tvær stúlkur sig til við að selja límónaði og popp. Stúlkurnar heita Júlía Margrét og Svala og eru nemendur í 4. bekk í BES.  Ágóðinn af sölunni hljóðaði upp á samtals 30.000 kr. sem þær ánöfðuðu Kvenfélagi Stokkseyrar. Kvenfélagið ákvað síðan að tífalda upphæðina og gefa skólanum.
Á myndunum má sjá stúlkurnar færa kvenfélaginu ágóðann og síðan þegar Edda Bára Höskuldsdóttir, formaður kvenfélagsins kom í heimsókn á bókasafnið í skólanum til Hafdísar Sigurjónsdóttur og Guðrúnar Jóhannsdóttur skólastjóra til að sjá það sem keypt hafði verið fyrir styrkinn.