Árshátíð Barnaskólans á Eyrarbakka og Stokkseyri

Framundan er lokavika skólans fyrir páskaleyfi. Það þýðir að runnin er upp tími árshátíðarinnar. Eins og fram kemur í skóladagatali skólans er árshátíðin fimmtudaginn 21. mars. Nánari upplýsingar verða sendar í töskupósti og í gegnum mentor.

En til viðbótar þessu verður 7. – 10. bekkur með sína árshátíð miðvikudaginn 20. mars. Sú árshátíð verður í sal skólans á Stokkseyri.

Það verður því nóg um að vera í næstu viku, bæði vinna og skemmtun.