Árshátíð BES

Árshátíð Barnaskólans á Eyrarbakka og Stokkseyri verður haldin í skólahúsinu á Stokkseyri fimmtudaginn 21. mars. Hátíðin hefst kl. 14:00 með hátíðardagskrá á sviði og síðan kaffiveitingum að henni lokinni. Nemendur mæta samkv. stundaskrá  í skólann og fara heim að árshátíð lokinni. Þau þurfa því að hafa fínu fötin með sér í skólann að morgni. Eftirfarandi skipulag verður á árshátíðinni: 1., 3., 5., 7. og 9. bekkur verða með atriði á sviði. 10. bekkur sér um kaffisölu í Skruggudal og aðrir bekkir sjá um undirbúning árshátíðarinnar og aðstoða við framkvæmd. Daginn eftir árshátíðina mæta nemendur í skólann samkv. stundaskrá. Dagurinn verður notaður til að ganga frá eftir árshátíðina og föndra fyrir páskahátíðina.  Eftir páska mæta nemendur í skólann þriðjudaginn 2. apríl samkv. stundaskrá. Í páskavikunni verður skólavistin opin mánudag, þriðjudag og miðvikudag.

Foreldrar og aðrir ættingjar velkomnir.

Kaffi og kökur kr. 800,- fyrir fullorðna, 400,- fyrir skólanemendur og frítt fyrir yngri börn.

Kveðja

Nemendur og starfsfólk  Barnaskólans á Eyrarbakka og Stokkseyri