Forvarnardagurinn í Árborg

Miðvikudaginn 4. október var Forvarnardagurinn haldinn hátíðlegur um land allt og stóð forvarnarhópur Árborgar fyrir glæsilegri dagskrá eins og síðustu ár. Nemendur í 9. bekk úr grunnskólunum þremur í sveitarfélaginu var skipt upp í hópa þvert á skólana og sóttu hóparnir viðburði og fengu kynningar á ýmsu sem tengist forvörnum á einn eða annan hátt. Nemendur sóttu fyrirlestur hjá fulltrúa frá lögreglunni sem fjallaði um forvarnarmál tengd henni, Golfklúbbur Selfoss kynnti sína starfsemi, Ráðgjafar hjá Velferð fjölluðu um sjálfsmynd, félagsmiðstöðin Zelzíus stóð fyrir hópefli og nemendur fengu kynningu á því sem er í boði í World Class.Dagskráin hófst með setningu í Selfossbíói en þar ávarpaði formaður fræðslunefndar, Sandra Dís Hafþórsdóttir þátttakendur. Nemendur hlýddu á ávarp frá forseta Íslands og Karitas Harpa kom og hvatti nemendur til dáða í sínu lífi. Deginum lauk með uppgjöri hópanna á verkefnum af www.forvarnardagur.is og grillveislu í anddyri Vallaskóla. Forvarnarhópurinn vill koma á framfæri þakklæti til starfsmanna og styrktaraðila. 

Páll Sveinsson, aðstoðarskólastjóri í Barnaskólanum á Eyrarbakka og Stokkseyri
Hermann Ö. Kristjánsson, deildarstjóri eldri deildar Sunnulækjarskóla
Guðmundur Sigmarsson, deildarstjóri efsta stigs Vallaskóla
Gissur Jónsson, framkvæmdastjóri Umf. Selfoss
Gunnar E. Sigurbjörnsson, tómstunda- og forvarnafulltrúi Sveitarfélagsins Árborgar