Læsisteymi BES tók sig til í samráði við umsjónakennara 1. til 6. bekkjar að vera með sameiginlegt lestrarátak 27. apríl til 1. maí síðastliðinn. Átakið virkaði þannig að nemendur söfnuðu sér poppbaunum fyrir hverja blaðsíðu sem þau lásu. Það fékkst ein baun fyrir hverja lesna blaðsíðu í skólanum og tvær fyrir hverja lesna blaðsíðu heima. Átakið endaði svo á uppskeruhátíð föstudaginn 8. maí þar sem allar poppbaunirnar voru poppaðar og horft var á bíómynd í salnum. Nemendur 6. bekkjar tóku að sér ásamt heimilisfræðikennara að poppa allan afraksturinn og gekk það heldur betur vel fyrir sig. Markmiðið með átakinu var að auka áhugann á lestri og hvetja til aukins lesturs bæði heima og í skólanum. Við þökkum foreldrum og forráðamönnum alveg sérstaklega vel fyrir góða þáttöku, án ykkar hvatningar og hjálpar hefði þetta ekki orðið að veruleika.

