Öflugt nemendaráð unglingastigs

Nemendaráð unglingastigs starfar undir styrkri stjórn Hauks Gíslasonar skólaárið 2015-2016. Formaður nemendaráðs er Ásdís María Magnúsdóttir. Á meðfylgjandi mynd má sjá nemendaráð að störfum ásamt Hauki og fulltrúa frá félagsmiðstöðinni Zelsíuz en nemendaráð fundar vikulega. Barnaskólinn leggur mikið upp úr að nemendalýðræðið sé sterkt og gegnir nemendaráð þar veigamestu hlutverki. Viðburðardagatal Nemendafélagsins er að finna neðar á heimasíðunni undir Bréf og tilkynningar.