SAFT kynning um örugga netnotkun

Við minnum á fyrirlestra frá SAFT – http://www.saft.is/ – á morgun, miðvikudaginn 17. maí. Nemendur fá kynningu og fræðslu á skólatíma en fundur fyrir foreldra verður í skólanum kl. 17:30. Við hvetjum alla foreldra nemenda í BES til að mæta. Efni kynningarinnar/fræðslunnar er þetta:

Erindi fyrir foreldra
Í fræðsluerindinu er farið yfir einkenni tælingarmála og hvað beri að varast í samskiptum við ókunnuga, hvað sé hægt að gera ef grunur vaknar um tilraun til tælingar og hvert sé hægt að leita. Eins fá foreldrar fræðslu um birtingarmyndir rafræns eineltis og alvarlegar afleiðingar óvarlegra samskipta og myndbirtinga á netinu, farið verður yfir slæm áhrif ofnotkunar á tölvum og neti auk þess sem bent er á leiðir til að koma netnotkun í jákvæðari farveg. Einnig verður fjallað um ýmsar tæknilegar lausnir, eins og síur, öryggisforrit og fleira.

Erindi fyrir nemendur:
Í fræðsluerindinu er farið yfir einkenni tælingarmála og hvað beri að varast í samskiptum við ókunnuga, hvað sé hægt að gera ef grunur vaknar um tilraun til tælingar og hvert sé hægt að leita. Eins fá börnin fræðslu um alvarleika rafræns eineltis og óvarlegra samskipta og myndbirtinga á netinu, farið verður yfir slæm áhrif ofnotkunar á tölvum og neti auk þess sem hvatt er til jákvæðrar og ábyrgrar netnotkunar. Fræðslan er lifandi og hvatt er til þátttöku nemenda. Stuðst er við stutt myndbönd sem að lýsa ýmsum klemmum sem komið geta upp með óvarlegri netnotkun.

Foreldrafyrirlestrarnir verða  í Sunnulækjarskóla þriðjudaginn 16. maí kl. 17:30 – 19:00 og á Stokkseyri miðvikudaginn 17. maí kl. 17:30 – 19:00.