Skólastarf fellur niður miðvikudaginn 21. apríl

Vegna breytinga á stofnlögnum við Eyrarveg/Víkurheiði verður kaldavatnslaust á Eyrarbakka og Stokkseyri á morgun, miðvikudaginn 21. apríl. Af þessum sökum þurfum við að fella niður skólastarf við Barnaskólann á Eyrarbakka og Stokkseyri á morgun. Frístundin Stjörnusteinar verður einnig lokuð á morgun vegna þessa. Ekki verður unnt að sinna sóttvörnum né öðrum mikilvægum þáttum í skólastarfi s.s. starfsemi mötuneytis. Kennarar vinna heima og verða í síma- og tölvupóstsambandi, stjórnendur verða í húsi. Við ætluðum okkur að halda árshátíð yngra stigs á morgun en þurfum að fresta henni til föstudags vegna þessa.