Vilt þú taka þátt í að móta framtíð skólans okkar við ströndina?
Hvenær: 19. október 2026 kl. 17:00-19:00
Hvar: Skólahúsnæði BES á Stokkseyri
Kæru foreldrar og forráðamenn nemenda í Barnaskólanum á Eyrarbakka og Stokkseyri, foreldrar elstu barna leikskólans Strandheima, kennarar og annað starfsfólk BES, sveitarstjórnarfulltrúar og nefndarmenn.
Með þessum pósti vil ég bjóða ykkur til samtals um framtíðarskipulag skólamála við ströndina. Foreldrum og forráðamönnum elstu barna leikskólans Strandheima er sérstaklega boðið að taka þátt, enda munu ákvarðanir um framtíðarskipulag skólastarfsins einnig snerta þeirra börn á komandi árum.
Við viljum horfa til framtíðar, bæði hvað varðar skólahúsnæði á Eyrarbakka og Stokkseyri og hvernig við getum áfram eflt gæði náms, kennslu og skólastarfsins í heild. Við viljum heyra ólík sjónarmið og nýta reynslu og hugmyndir skólasamfélagsins þegar næstu skref eru ákveðin.
Markmið okkar er sameiginlegt: að börnunum okkar líði vel, að þau fái góða menntun og tækifæri til að vaxa, læra og dafna í öruggu og hvetjandi námsumhverfi.
Framtíð skólans varðar okkur öll. Með velferð, nám og framtíð barnanna okkar að leiðarljósi viljum við leggja grunn að sameiginlegri sýn á öflugt og farsælt skólastarf á Eyrarbakka og Stokkseyri.
Við hlökkum til að sjá ykkur sem flest og vinna saman að framtíð skólastarfs við ströndina.
Skráning fer fram á barnaskolinn@barnaskolinn.is eða hjá riturum skólans í síma 480 3200.
Með kærri kveðju,
Guðrún Jóhannsdóttir, skólastjóri Barnaskólans á Eyrarbakka og Stokkseyri

