Bókasafn
Safnvörður: Hafdís Sigurjónsdóttir
Skólabókasafn Stokkseyri
480 3223
8:15 - 13:55 alla virka daga nema föstudaga
Skólabókasafn Barnaskólans er staðsett á 2. hæð í húsnæði skólans á Stokkseyri og sinnir nemendum í 1. – 6. bekk, er það jafnframt almenningssafn. Lítið útibú er í skólanum á Eyrarbakka og sinnir það nemendum í 7. – 10. bekk.
Nemendum í 3. – 6. bekk er heimilt að fá lánaðar bækur heim, hámark 3 í einu og lánstími eru 30 dagar. 1. -2. bekkur fá bækur að láni inn í stofur.
Það er hægt að fá flestar bækur bókasafnsins að láni, en ýmsar handbækur eru einungis til notkunar á safninu.
1. – 6. bekkur eiga fasta tíma á bókasafninu, 80 mín. í hverri viku.
Allur safnkosturinn er skráður í tölvukerfið Leitir (sjá www.leitir.is), sem er sameiginlegt bókasafnskerfi fyrir allt landið.
Sá sem tekur bók að láni ber ábyrgð á henni. Ef hún týnist eða skemmist verður viðkomandi nemandi eða forráðamaður hans að bæta safninu bókina.
Markmið:
- Að kenna nemendum að nota bókasöfn
- Örva lestur
- Tryggja auðveldan aðgang að safnkosti
- Að nemendur geti fundið og notað upplýsingar á skilvirkan hátt