Stórskemmtileg skólavaka

Skólavaka Barnaskólans fór fram miðvikudaginn 26. september en þar kynnti skólinn starf sitt og áherslur skólaársins. Magnús J. Magnússon skólastjóri setti vökuna og sagði frá sýn skólans, þar sem nemendandinn væri stöðugt í fyrirrúmi. Ragnheiður Jónsdóttir kynnti forvarnarstarf gegn einelti og Sædís Harðardóttir sagði frá lestrarstefnu skólans. Að því loknu fóru foreldrar og forráðamenn og hittu umsjónarkennara og faggreinakennara sem kynntu starf vetrarins. Skólin bauð svo upp á súpu og endaði skólavakan á erindi frá Lucindu Árnadóttur sálfræðings á fræðslusviði Árborgar um kvíða.