Súputónleikar BES 30. október

Sunnudaginn 30. október 2016  verða haldnir fjáröflunar- og súputónleikar í sal skólans á Stokkseyri.  Núverandi og fyrrverandi nemendur skólans spila og syngja og einnig eru þarna starfsmenn og foreldrar sem koma fram. Hugmyndin með þessum tónleikum er að safna fyrir tónmenntastofuna okkar. Tónleikarnir hefjast kl. 12.00 og að þeim loknum er boðið upp á súpu og brauð. Frjáls framlög  til styrktar tónlist í skólanum! Vonum við að vinir og velunnarar hugsi  hlýlega til okkar og tónmenntastofunnar.

Súputónleikarnir eru í samvinnu við Tónlistarskóla Árnesinga