Vel lukkaðir súputónleikar

Á dögunum fóru fram hinir árlegu súputónleikar BES í samstarfi við Tónlistarskóla Árnesinga. Tónleikarnir voru gríðar vel sóttir og góður rómur gerður að metnaðarfullri dagskrá sem samanstóð af flutningi nemenda BES og aðstandenda þeirra. Hæfileikar flytjenda fara vaxandi með hverju árinu og eru gæðin í sífelldum vexti. Að tónleikum loknum gæddi fólk sér á dásamlegri súpu frá Hugrúnu matráði gegn frjálsum framlögum í sjóð til söfnunar fyrir hljóðfærakaup í tónmenntastofu BES.