Ráðning aðstoðarskólastjóra og deildarstjóra stoðþjónustu

Ragna Berg Gunnarsdóttir hefur verið ráðin í starf aðstoðarskólastjóra Barnaskólans á Eyrarbakka og Stokkseyri frá og með 1. ágúst 2022.  

Ragna hefur starfað við Barnaskólann á Eyrarbakka og Stokkseyri frá 2017, fyrst sem umsjónarkennari en síðar við hin ýmsu störf  meðfram umsjónarkennslu. Þar má nefna nemendaþjónustu, afleysingu deildarstjóra stoðþjónustu og deildarstjóra unglingastigs. Áður hafði hún starfað sem umsjónar-, og listgreinakennari við Hörðuvallaskóla, sem sjálfstætt starfandi dagforeldri, deildarstjóri á Kópavogshæli ásamt því að vera með sjálfstæðan rekstur. Ragna hefur lokið B.ed í grunnskólakennarafræðum frá Háskóla Íslands, M.A. í Mennta- og menningarstjórnun frá Háskólanum á Bifröst, viðbótardiplómu í opinberri stjórnsýslu, viðbótardiplómu í stjórnun menntastofnanna og söngnámi frá Tónlistarskóla Garðabæjar, Tónlistarskóla Kópavogs og Söngskóla Reykjavíkur. 

 

 


Inga Jóna Bragadóttir hefur verið ráðin í starf deildarstjóra stoðþjónustu við Barnaskólann á Eyrarbakka og Stokkseyri frá og með 1. ágúst 2022.
 

Inga Jóna hefur starfað sem þroskaþjálfi við Barnaskólann á Eyrarbakka og Stokkseyri  í eitt skólaár en áður starfaði hún á leikskólanum Fífusölum sem sérkennslustjóri. Þar skipulagði hún og hélt utan um einstaklingsmiðaðan stuðning og þjálfun fyrir börn sem þurftu á málörvun og félagsfærni þjálfun að halda, auk þess að skipuleggja og halda utan um börn sem áttu við kvíða eða hegðunarvandamál að stríða. Inga hefur lokið B.a.í þroskaþjálfun frá Háskóla Íslands. 

Við óskum Rögnu og Ingu Jónu til hamingju með stöðurnar og hlökkum til samstarfsins við þær á nýjum vettvangi.