Árshátíð á báðum stöðum!

Það var sannkölluð veisla þegar unglingarnir héldu glæsilega árshátíð fimmtudaginn 9. apríl!
Boðið var upp á góðan mat, happdrætti með mörgum flottum vinningum og skemmtileg, fyndin atriði þar sem bæði nemendur og starfsfólk stóðu sig frábærlega.
Að lokinni dagskrá var svo dansað fram til klukkan 23:00 og stemningin í toppi.
Unglingarnir fóru glaðir og ánægðir heim og fengu svo að sofa aðeins út áður en þau mættu aftur í skólann klukkan tíu í dag.

Yngra stigið lét svo ekki sitt eftir liggja og hélt sína árshátíð í morgun klukkan 10:00 – og hún heppnaðist einstaklega vel!
Tveir kynnar úr 6. bekk stóðu sig frábærlega við að kynna atriðin fyrir aðstandendum og töluðu af öryggi eins og þau hefðu gert þetta oft áður.
Nemendur í 1. og 2. bekk sungu saman lag, 3. og 4. bekkur tók einnig lag af miklum krafti – allir stóðu sig með mikilli prýði.
Leiksýning 5. og 6. bekkjar var einstaklega vel heppnuð, búningar voru glæsilegir og sviðsmyndin falleg. Allir lögðu sitt af mörkum og sköpuðu frábæra stemningu.

Við viljum færa öllum sem komu að undirbúningi innilegar þakkir fyrir aðstoðina og metnaðinn sem lagður var í verkið á báðum stöðum!