Tímabundin lokun á Álfsstétt og breyting á skólaakstri

Tímabundin lokun á Álfsstétt
Sveitarfélagið Árborg auglýsir framkvæmdir við gerð hraðahindrunar á Álfsstétt á Eyrarbakka. Vegna framkvæmdanna verður gatan lokuð fyrir umferð frá og með miðvikudeginum 4. nóvember til og með föstudeginum 6. nóvember.

Á meðan á lokun stendur verður hjáleið um Túngötu og Eyrargötu.

Breytt leið skólabíls
Vegna lokunarinnar verður leið skólabílsins tímabundið breytt. Skólabíllinn mun aka frá skólanum á Stokkseyri yfir í skólann á Eyrarbakka, fara upp þjóðveginn, beygja inn á Álfsstétt og þaðan inn á Túngötu. Að því loknu tekur hann efri hringinn til baka.
Stoppistöðin við Háeyravelli dettur út á meðan á framkvæmdum stendur. Nemendur sem eru vanir að taka skólabílinn við Háeyrarvelli fari út í skóla á Eyrarbakka og eru hvattir til að mæta þar tímanlega.

Við biðjum foreldra og nemendur að hafa þessar breytingar í huga á meðan á framkvæmdunum stendur.