Kæru foreldrar og forráðamenn,
Frá og með mánudeginum 23. nóvember verða breytingar á akstursleið skólabílsins á Eyrarbakka. Breytingarnar eiga við um akstur í upphafi og lok skóladags.
Við erum að einfalda akstursleiðina með það að markmiði að stytta þann tíma sem nemendur verja í skólabílnum og tryggja að nemendur í 1.-6. bekk komist tímanlega í skólann á Stokkseyri.
Ný akstursleið á Eyrarbakka
Í stað þess að aka hring um þorpið mun skólabíllinn nú aka eftir Búðarstíg, Eyrargötu og Háeyrarvöllum, frá samkomuhúsinu Stað að skólabyggingunni á Eyrarbakka.
Fjórar stoppistöðvar verða á leiðinni:
1. Samkomuhúsið Stað – brottför kl. 7:55
2. Bakkinn – strætóskýlið við sjoppuna
3. Kirkjugarðurinn
4. Barnaskólinn á Eyrarbakka
Að því loknu heldur skólabíllinn áfram til Stokkseyrar.
Sama akstursleið verður farin í lok skóladags þegar nemendum er ekið heim.
Uppfærð akstursáætlun hefur verið birt á heimasíðu skólans.
Við vonum að þessar breytingar verði til þess að gera skólaaksturinn einfaldari og skilvirkari fyrir alla.
Bestu kveðjur,
Stjórnendur BES

