Tilkynning frá Árborg
Vegna appelsínugulrar viðvörunar frá Veðurstofu Íslands fyrir fimmtudaginn 26. mars sendum við eftirfarandi tilkynningu út:
Kæru foreldrar og forráðamenn nemenda við Barnaskólann á Eyrarbakka og Stokkseyri.
Skólahald verður með eðlilegum hætti í Barnaskólanum á Eyrarbakka og Stokkseyri á morgun fimmtudag. Engu að síður verða breytingar á skólaakstri, þær hafa verið gefnar út frá GTS og eru þessar:
Vegna appelsínugulrar veðurviðvörunar í fyrramálið (fimmtudaginn 26. mars) fellur eftirfarandi akstur niður:
Dreifbýlisakstur fyrir grunnskóla Árborgar um morguninn
Akstur fyrir Barnaskólann á Stokkeyri og Eyrarbakka
Strætóferðir Árborgarstrætó fram að hádegi, eftir það verður staðan tekin
Ferðaþjónusta Fatlaðra – Ekki verður farið út fyrir Selfoss
Hér má sjá veðurskýringu Vedurstofu Íslands.
Við biðjum foreldra og forráðamenn að fylgjast með fréttum og mögulegum breytingum á fréttum og tilkynningum vegna veðurs og meta hvort þau sendi sín börn til skóla eður ei. Vinsamlegast látið vita í tölvupósti á barnaskolinn@barnaskolinn.is ef nemendur mæta ekki til skóla.
Mælst er til þess að foreldrar og forráðamenn sendi börn sín ekki fótgangandi til skóla.
ALM-vedurbaeklingur-forsjaradilar-IS-011122.pdf
Við viljum benda á að árshátíðum á báðum stigum hefur verið frestað fram yfir páska vegna þessa. Dagsetningar verða auglýstar síðar.
Stjórnendur Barnaskólans á Eyrarbakka og Stokkseyri.

