Akstur skólabíla fellur niður

Skólabílar ganga ekki í dag vegna veðurs við Barnaskólann Eyrarbakka og Stokkseyri. Staðan verður tekin þegar líður á morguninn, mögulega fer aksturinn í gang á ný ef veðrinu slotar. Skólarnir verða opnir fyrir þá nemendur sem komast í skólann í dag og eru ekki háðir akstri skólabíla.

Uppfært kl. 9:47

Af höfðu samráði við GT rútufyrirtæki verður enginn skólaakstur í dag, þriðjudaginn 8. febrúar

Stjórnendur