Barnabær 2025

Við í BES svífum enn á bleiku skýi eftir ótrúlega vel heppnaða Barnabæjarviku! Dagana 13.-16. maí breyttist skólinn okkar í líflegt samfélag þar sem stofnuð voru fjölbreytt fyrirtæki, nemendur sóttu um störf, seldu vörur og þjónustu og ráku sitt eigið hagkerfi með BESÓUM.

Í þrjá daga unnu börnin hörðum höndum að undirbúningi og föstudaginn 16. maí opnaði Barnabær fyrir foreldra, gesti og alla áhugasama. Það var sannkölluð veisla: bíósýningar, kaffihús, draugahús, flóttaherbergi, skartgripagerð, spænskir blævængir og margt, margt fleira. Allt skipulagt, hannað og framleitt af nemendum með aðstoð starfsfólks og ómetanlegra sjálfboðaliða.

Við fengum einnig dýrmæta heimsókn frá vinaskóla okkar á Norður-Spáni. Tólf spænskir nemendur tóku fullan þátt í Barnabæ og störfuðu á hinum ýmsu stöðvum. Kennararnir þeirra stýrðu einnig eigin fyrirtæki þar sem íslenskir nemendur gátu fræðst um spænska menningu og lært að búa til fallega blævængi. Þetta menningarmót var bæði lærdómsríkt og skemmtilegt og tengslin dýpkuðu með hverjum deginum.

Við viljum hjartanlega þakka öllum foreldrum og sjálfboðaliðum sem lögðu hönd á plóginn, við undirbúning eða sem gestir. Þið gerðuð gæfumuninn!

Á meðfylgjandi mynd má sjá bæjarstýrurnar okkar, Önnu Völu tónmenntakennara og Hildi, kennara í 3. bekk, sem héldu utan um allt skipulag Barnabæjar með mikilli elju og fagmennsku. Með þeim á myndinni er Bragi bæjarstjóri Árborgar, sem kom í heimsókn og tók þátt í hátíðinni með okkur.

Við hlökkum nú þegar til næsta Barnabæjar sem verður haldinn á vormánuðum árið 2027.
Takk fyrir frábæra viku, við erum ótrúlega stolt af þessu verkefni og ykkur öllum! 💛