Kæru foreldrar/forráðamenn.
Miðvikudaginn 9. október munu kennarar í Árborg hittast í skólaþróunarverkefni Árborgar kl. 13:00. Þetta þýðir að skólastarfi lýkur kl. 12:05 þennan dag og verður nemendum ekið heim að hádegisverði loknum eða kl. 12:35.
Hið árlega haustþing kennara verður haldið á Selfossi föstudaginn 11. október. Vegna þessa fellur kennsla niður þann dag.
Frístundin Stjörnusteinar verður lokuð vegna starfsdags föstudaginn 11. október
Skólastjóri