Fréttir

Nýr deildarstjóri stoðþjónustu

Á dögunum var staða deildarstjóra stoðþjónustu við Barnaskólann á Eyrarbakka og Stokkseyri auglýst en Sædís Ósk Harðardóttir hafði gegnt þeirri stöðu. Alls bárust átta umsóknir og eftir ítarlegt ferli atvinnuviðtala var Ragna Berg Gunnarsdóttir ráðin í stöðu deildarstjóra stoðþjónustu við Barnaskólann á Eyrarbakka og Stokkseyri. Hún hefur störf sem deildarstjóri 1. júní næstkomandi. Ragna hefur […]

Nýr deildarstjóri stoðþjónustu Read More »

Flottur árangur BES í Skólahreysti

Lið Barnaskólans á Eyrarbakka og Stokkseyri stóð sig glæsilega í undanriðli Skólahreysti sem fram fór miðvikudagskvöldið 27. apríl. Þau Vésteinn, Eyrún, Jóhanna og Halldór og Heiðný  voru fulltrúar okkar í keppninni og náðum við 38 stigum – vel gert! Stuðningsliðið okkar var til fyrirmyndar og voru okkar fulltrúar sjálfum sér og skólanum til sóma.

Flottur árangur BES í Skólahreysti Read More »

Árshátíð yngra stigs og páskaleyfi

Framundan er árshátíð yngra stigs en hún fer fram föstudagsmorguninn 8. apríl kl. 10:30 í hátíðarsal skólans á Stokkseyri. Foreldrar og forráðamenn eru velkomnir. Að lokinni árshátíð verður boðið upp á hamborgaraveislu fyrir alla á yngra stigi. Skólastarfi á yngra stigi lýkur kl. 12:30. Stjörnusteinar frístund hefur sína starfsemi kl. 13:15, skólinn sér um gæslu

Árshátíð yngra stigs og páskaleyfi Read More »

Stóra upplestrarkeppnin í Árborg

Stóra upplestrarkeppnin í Árborg 2022 var haldin með hátíðlegu yfirbragði við Barnaskólann á Eyrarbakka og Stokkseyri fimmtudaginn 24. mars síðastliðinn. Stóra upplestrarkeppnin hefur átt fastan sess í íslensku skólastarfi um land allt frá skólaárinu 1996-1997. Raddir, samtök um vandaðan upplestur og framsögn eru stofnendur keppninnar og hafa haldið utan um skipulagið öll þessi ár en

Stóra upplestrarkeppnin í Árborg Read More »

Heimsókn frá Evrópu – undur vatns í náttúru og vísindum

Dagnana 14. -18. mars síðastliðinn fengum við í Barnaskólanum á Eyrarbakka og Stokkseyri skemmtilega heimsókn frá félögum okkar í Erasmus+ verkefninu okkar Undur vatns í náttúru og vísindum.  Þessir gestir komu frá Danmörku, Eistlandi og Króatíu en það eru samstarfslönd okkar í þessu verkefni.  Eins lesa má út úr nafni verkefnisins þá fjallar það um

Heimsókn frá Evrópu – undur vatns í náttúru og vísindum Read More »

Undankeppni Stóru upplestrarkeppninnar

Undankeppni Stóru upplestrarkeppninnar fór fram á Eyrarbakka þriðjudaginn 15. mars 2022. Nemendur 7. bekkjar spreyttu sig á lestri texta og ljóðaflutningi en nemendur 6. bekkjar voru sérstakir gestir ásamt foreldrum. Einn nemandi þurfti að lesa í gegnum fjarfundabúnað þar sem hann var veikur heima og vildi ekki missa af keppninni. Dómnendin var gríðarlega öflug, skipuð

Undankeppni Stóru upplestrarkeppninnar Read More »

Öskudagur 2. mars – skertur skóladagur

Á morgun er Öskudagur og munum við brjóta skólastarfið upp þess vegna. Nemendur unglingastigs munu hitta nemendur yngra stigs á Stokkseyri kl. 10 og slá köttinn úr tunnunni. Þá tekur við skemmtileg dagskrá þar sem nemendur og starfsmenn vinna saman í leik og starfi. Skóladeginum lýkur kl. 12:30, skólinn býður upp á gæslu fyrir þá

Öskudagur 2. mars – skertur skóladagur Read More »

BES lítur sér nær og fjær

Barnaskólinn á Eyrarbakka og Stokkseyri fékk styrk frá Sprotasjóði í fyrra til að efla samband og samvinnu við nærumhverfi skólans – BES lítur sér nær. Fyrsti hluti þeirrar vinnu leit dagsins ljós á dögunum þegar nemendur skólans unnu með Ástu Guðmundsdóttur listakonu á Eyrarbakka að alþjóðlegu listaverkefni með japanska listamanninum Takuya Komaba. Ásta og Takuya

BES lítur sér nær og fjær Read More »