Forvarnarfyrirlestur frá Blátt áfram á Eyrarbakka

Nemendur 8. og 9. bekkjar fá heimsókn eftir hádegi í dag. Fulltrúi frá Blátt áfram verður með forvarnarkynningu á samskiptum kynjanna, hvað teljast eðlileg samskipti, hvenær er farið út fyrir eðlilegan samskiptaramma og svo framvegis. Strákarnir fá sinn fyrirlestur kl. 12:35 -13:15 í Hálsakoti og stúlkurnar kl. 13:15 – 13:55. Foreldrafundur verður haldinn kl. 17:00 í húsnæði skólans á Eyrarbakka og hvetjum við alla til að mæta.

https://www.blattafram.is/
Stjórnendur