Í vikunni fékk starfsfólk BES og Vallaskóla áhugaverða og fræðandi kynningu frá Samtökunum ’78. Þar sem meðal annars var fjallað um regnhlífarhugtök hinseginleikans og opnaði á góðar og mikilvægar umræður. 🌈
Fræðslan er hluti af undirbúningi fyrir Hinsegin viku Árborgar, sem haldin verður dagana 2.–6. mars. Markmið vikunnar er að leggja áherslu á mannréttindi, virðingu og jafnrétti og skapa vettvang þar sem fjölbreyttar raddir og lífsskoðanir fá að heyrast og njóta virðingar.

