Innritun í 1. bekk skólaárið 2026-2027 – Árgangur 2020

Innritun barna sem fædd eru árið 2020 og eiga að hefja skólagöngu í Sveitarfélaginu Árborg haustið 2026 hefst 9. febrúar næstkomandi.

Innritun fer fram á https://island.is/umsoknir/grunnskoli og hefst úrvinnsla umsókna um miðjan febrúar.

Nánari upplýsingar um grunnskólana í Árborg, ásamt skráningu í mötuneyti og frístund má finna á vefsíðu árborgar.

Upplýsingar um innritun er hægt að fá í grunnskólunum og hjá þjónustuveri Árborgar í síma 480-1900

Foreldrar verðandi grunnskólabarna eru minntir á að segja upp leikskólavist barnsins skriflega hjá leikskólastjórnendum.

Barnaskólinn á Eyrarbakka og Stokkseyri
Stekkjaskóli       
Sunnulækjarskóli                      
Vallaskóli