Á dögunum komu börn frá leikskólunum Brimver á Eyrarbakka og Æskukoti á Stokkseyri í heimsókn á skólabókasafnið á Stokkseyri og í tilefni af degi íslenskrar tungu var haldin lestrarstund fyrir þau. Aníta Björg og Máni, nemendur í 4. bekk, lásu fyrir þau sögur. Aníta Björg las fyrir stelpurnar söguna Bína fer í leikskóla eftir Ásthildi Bj. Snorradóttir og Máni las fyrir strákana söguna Bína bálreiða eftir sama höfund. Leikskólabörnin voru yfir sig ánægð og einnig nemendur BES sem sinntu ábyrgðamiklu en líka skemmtilegu hlutverki.