Litla upplestrarkeppnin í 4. bekk 2026

Þann 13. febrúar síðastliðinn ríkti mikil eftirvænting og hátíðarstemning í skólanum okkar þegar Litla upplestrarkeppnin var haldin í Litla leikhúsinu. Þessi dýrmæti viðburður byggði á sömu fallegu hugmyndafræði og Stóra upplestrarkeppnin, þar sem ávallt var haft að leiðarljósi hjá nemendum í 4. bekk að bæta árangur í lestri, munnlegri tjáningu og framkomu. Það var sannarlega unun að fylgjast með nemendum okkar stíga á stokk af miklu öryggi og blómstra á sviðinu.

Undirbúningurinn fyrir þessa hátíð hjá 4. bekk var bæði vandaður og skemmtilegur, en hann fléttaðist inn í almenna íslenskukennslu vetrarins. Umsjónarkennarinn Sigga Birna á skilið mikið hrós en hún er búin að halda einstaklega vel um allan undirbúning og sá til þess að þetta yrði sannkölluð upplestrarHÁTÍÐ. Nemendur lögðu sig alla fram við að æfa framsögn sína, hvort sem um var að ræða ljóð, málshætti eða þulur. Mikið frelsi var ríkjandi þar sem börnin fengu sjálf að taka þátt í vali á lesefni og ákváðu hvort þau læsu ein, í litlum hópum eða öll saman. Þessi aðferð efldi samvinnu þeirra og sjálfstraust til muna. Tónmenntakennarinn okkar, hún Anna Vala, átti einnig stóran þátt í að gera verkefnið enn lærdómsríkara með því að tengja tónlist og söng órjúfanlega við dagskrána, sem gerði allar æfingar einstaklega eftirminnilegar.

Keppnishugtakið í þessu verkefni var sérstakt að því leyti að það fól einungis í sér að verða betri í dag en í gær. Markmiðið var að keppa við sjálfan sig án samkeppni við aðra, og sýndu nemendur fram á mikla virðingu og vandvirkni í hverju atriði. Dagskráin hófst klukkan 8:30 á fallegum samlestri á ljóðinu „Kurteisi“. Því næst fluttu nemendur málshætti af mikilli prýði. Einn af hápunktunum var þegar allir sameinuðust í kraftmiklum flutningi á „Krummi svaf í klettagjá“ þar sem tónlistin ómaði um salinn. Ljóðið „Sumardagur“ var flutt með skapandi leikrænni tjáningu og að lokum gáfu nemendur allt sitt í „Litaþuluna“.

Foreldrar og forsjáraðilar fjölmenntu til að fylgjast með og sáu börnin sín í 4. bekk skína af stolti. Allir nemendur voru hluti af sigurliðinu og fengu allir viðurkenningarskjal í lokin. Eftir glæsilega dagskrá var boðið upp á kaffi, safa og kex þar sem gestir og nemendur gátu átt notalega stund saman. Við erum ótrúlega stolt af okkar flottu nemendum sem sýndu okkur að með samvinnu og jákvæðni er hægt að ná ótrúlegum framförum. Þetta var dýrmæt stund sem mun lifa lengi í minningunni.