Nemendalýðræði í verki 

Nemendaráð BES vinnur þessa dagana að endurskoðun skólareglna skólans. Á fundi ráðsins voru núverandi skólareglur BES skoðaðar og bornar saman við skólareglur annarra grunnskóla í Árborg.

Nemendur hafa fengið það verkefni að rýna reglurnar, velta fyrir sér hvað þeim finnst gott, hverju mætti breyta og hvort eitthvað vanti. Hugmyndir þeirra og ábendingar verða síðan hluti af áframhaldandi vinnu við endurskoðun skólareglna BES.

Nemendafélög grunnskóla hafa mikilvægu hlutverki að gegna og vinna meðal annars að félags-, hagsmuna- og velferðarmálum nemenda. Með þessari vinnu viljum við virkja nemendalýðræði og gefa nemendum raunverulega rödd í málefnum sem snerta þeirra eigið skólastarf og skólaumhverfi.

Fram undan er einnig vinna vegna nýrra reglna um símafrí í skólum. Nemendaráð BES mun vera með fulltrúa í þeirri vinnu í Árborg, þar sem nemendur fá tækifæri til að koma sjónarmiðum sínum á framfæri og hafa áhrif á mótun reglnanna.

Við hlökkum til að sjá hvaða hugmyndir og sjónarmið koma frá nemendum og halda áfram þessari mikilvægu vinnu með þeim.