Samhristingur og Ólympíuhlaup í BES

Skólastarfið hófst með skemmtilegum samhristingsdegi þar sem allir nemendur 1.–10. bekkjar tóku meðal annars þátt í samvinnuleiknum Indiana Jones. Hlátrasköll heyrðust vítt og breitt um þorpið og var mikið fjör í skólanum.

Dagurinn endaði á árlegu Ólympíuhlaupi í blíðskaparveðri. Boðið var upp á 2,5 km hring um hverfið og gátu nemendur gengið, skokkað eða hlaupið allt að fjóra hringi (10 km). Alls tóku 116 manns þátt í hlaupinu þetta árið og hlupu þeir samtals 425,5 km. Það þýðir að hver einstaklingur hljóp að meðaltali 3,7 km, sem er hálfum kílómetra lengra en í fyrra! Nemendur sýndu frábæran dugnað og úthald. Stemningin var létt og gleðin skein úr hverju andliti.