Í dag var síðasti skóladagur skólaársins við Barnaskólann á Eyrarbakka og Stokkseyri. Að venju var íþrótta- og leikjadagurinn haldinn hátíðlegur í blíðskaparveðri.
Á þessum degi etja þriggja manna lið af unglingastigi kappi í Járnkrakkanum, sem er þríþraut þar sem einn keppandi siglir ákveðna vegalengd á kajak, annar hjólar frá Stokkseyri að Eyrarbakka og sá þriðji hleypur frá Eyrarbakka að skólanum á Stokkseyri.
Að þessu sinni voru sjö lið skráð til leiks og stóðu þau sig öll með mikilli prýði. Öll liðin bættu fyrri árangur og sigurvegararnir voru liðið „Hannes er hraður“, en liðið skipuðu þeir Hannes, Jósúa og Óskar Vilhelm.
Jafnframt var boðið upp á fjölbreyttar stöðvar þar sem nemendur gátu spreytt sig á ýmiss konar verkefnum og leikjum. Þar má nefna gerð ætilegra hálsmena, gangstéttarkrít, skotbolta, leikinn Ein króna, körfubolta, origami og margt fleira.
Dagurinn endaði svo á hefðbundnu pylsugrilli þar sem nemendur og starfsfólk gátu notið samverunnar.
Frábær dagur og skemmtileg lok á enn einu viðburðaríku skólaári.

