Skólahreysti er liðakeppni milli nemenda í 9. og 10. bekk grunnskóla í hreysti og hefur á undanförnum árum fest sig í sessi sem ein af kraftmestu og vinsælustu keppnum fyrir unglinga á Íslandi. Keppnin sameinar styrk, úthald, snerpu og liðsheild. Skólahreysti hefur vakið gríðarlega athygli um land allt frá því fyrsta keppnin var haldin árið 2005. Hugmyndin að baki Skólahreysti kom frá þeim Andrési Guðmundssyni og Láru Berglindi Helgadóttur, og keppnin hefur verið í stöðugri þróun síðan.
Forkeppni BES fór fram miðvikudaginn 30. apríl og stemningin var hreint út sagt frábær! Keppendurnir í forkeppninni stóðu sig með prýði og sýndu seiglu, elju og gleði. Nemendur og starfsmenn á unglingastigi hvöttu keppendur áfram af miklum krafti, stemning var vægast sagt góð. Að keppni lokinni fengu allir nemendur og starfsmenn að prófa hreystibrautina, sem vakti lukku.
Liðsmenn BES í Skólahreysti 2025:
– Þorsteinn Jón Hlöðversson – upphífingar og dýfur
– Kolbrá Agla Steingrímsdóttir – armbeygjur og hreystigreip
– Mía Einarsdóttir Klith og Hannes Breki Björnsson – hraðaþraut
– Varamenn: Joao Martins Da Silva Almeida og Stefanía Vala Valsdóttir
Þriðjudaginn 6. maí var síðan komið að riðlakeppninni okkar í Skólahreysti. Keppnin fór fram í Íþróttamiðstöðinni Varmá í Mosfellsbæ og var í beinni útsendingu á RÚV og hægt er að horfa á hana á sarpinum á vef RÚV fyrir þá sem vilja upplifa spennuna aftur.
Keppendur okkar stóðu sig frábærlega og enduðuð í 8. sæti í sínum riðli, sem er mjög flottur árangur hjá ungu og metnaðarfullu liði. Framtíðin er svo sannarlega björt þegar kemur að hreysti í BES.
Nemendur í skólahreysti vali hafa æft að alúð í vetur, sýnt dugnað og seiglu sem skilaði sér í frábæru keppnisliði og einnig flottu stuðningsliði! En það var alveg á hreinu strax eftir undankeppnina að það væri áhugi hjá nemendum í skólahreysti vali sem og öðrum nemendum á unglingastigi að fylgja liðinu á keppnina og styðja þau heilshugar. Því var leigð rúta fyrir hópinn og mætti Stuðningslið BES, klætt í gulu. Þau létu heldur betur til sín taka bæði á keppnisstað og í rútunni til og frá Mosfellsbæ! Mikil gleði ríkti í hópnum og við áttum dásamlegt lukkutröll sem hélt uppi stemningunni með krafti og kátínu allan tímann.
Við viljum færa Sissu íþróttakennara sérstakar þakkir fyrir að halda utan um allt skipulag keppninnar frá forkeppni, gegnum æfingar og undirbúning, yfir í þátttöku í sjálfri keppninni. Sissa hefur haldið úti Skólahreysti valfagi í vetur og lagt sig fram við að skapa jákvæða stemningu og hvatningu í kringum þessa flottu keppni.
Jafnframt viljum við þakka foreldrum sem tóku að sér að skutla keppendum og styðja við bakið á liðinu, samvinna heimila og skóla er ómetanleg og lykill að góðu skólastarfi.
Það er einnig gaman að segja frá því að um þessar mundir eru hreystitæki að rísa á skólalóðinni á Eyrarbakka! Nemendur munu geta æft upphífingar, dýfur, hang og fleira. Hver veit nema einhverjir nemendur í BES nái Íslandsmeti í skólahreysti framtíðinni. Því eins og máltækið segir, æfingin skapar meistarann.
Við erum stolt af ykkur, Skólahreystilið BES, takk fyrir að standa ykkur svona vel, sýna liðsheild og vera flottar fyrirmyndir!