Skólaslit Barnaskólans á Eyrarbakka og Stokkseyri – föstudaginn 6. júní
Skólaslit Barnaskólans á Eyrarbakka og Stokkseyri fara fram föstudaginn 6. júní í sal skólans á Stokkseyri.
Foreldrar, forsjáraðilar og aðrir aðstandendur eru hjartanlega velkomnir á skólaslit hvers hóps fyrir sig.
Skipulag skólaslita verður eftirfarandi:
* Kl. 9:00 – 1.–6. bekkur
Rúta fer frá skólanum á Eyrarbakka kl. 8:45 beint á Stokkseyri.
Kl. 9:30 fer rúta aftur til Eyrarbakka og fer hring um þorpið.
* Kl. 10:00 – 7.–9. bekkur
Rúta fer frá skólanum á Eyrarbakka kl. 9:45 beint á Stokkseyri.
Kl. 10:30 fer rúta aftur til Eyrarbakka og fer hring um þorpið.
* Kl. 13:00 – Útskrift 10. bekkjar
Engar rútuferðir verða í tengslum við útskriftina.
Að athöfn lokinni verða kaffiveitingar fyrir nemendur og aðstandendur þeirra.