Stórkostleg árshátíð yngra stigs

Í dag fór fram árshátíð yngra stigs á Stokkseyri eða 1. -6. bekkja. Troðfullur salur gesta mætti þaulæfðum listamönnum stigsins en hver bekkur útfærði atriði, hver með sínu nefi. Nemendur 6. bekkjar sáu um kynningar í leikrænu formi. Það má með sanni segja að hátíðin hafi vel lukkast og góður rómur gerður að skemmtilega útfærðum og fjölbreyttum atriðum nemenda. Í lok hátíðarinnar gæddu nemendur og gestir sér á dásamlegum kaffiveitingum sem kórar Barnaskólans sáu um að framreiða. Kórarnir gerður það í fjáröflunarskyni vegna væntanlegrar utanlandsferðar á kóramót í Noregi. Takk fyrir frábæran dag, nemendur, gestir og starfsfólk Barnaskólans.