Undankeppni Stóru upplestrarkeppninnar í Árborg fór fram hjá okkur í Barnaskólanum í stofu 1 á Eyrarbakka þriðjudaginn 10. mars. Þar stigu átta frábærir nemendur á svið og sýndu mikinn dugnað, fallegan framburð og hugrekki við upplesturinn.
Eftir spennandi keppni voru tveir aðallesarar valdir til að keppa fyrir hönd skólans, auk eins varamanns.
Aðallesarar Barnaskólans í ár eru Arney Hekla Steingrímsdóttir og Ísak Guðni Birgisson.
Varamaður er Edward Paul Eiden.
Við óskum þeim öllum innilega til hamingju og erum afar stolt af frammistöðu þeirra!
Aðalkeppnin fer fram í Barnaskólanum á Eyrarbakka og Stokkseyri, í salnum á Stokkseyri, fimmtudaginn 19. mars kl. 13:30.
Við hlökkum til að fylgjast með þeim og óskum þeim góðs gengis í keppninni!

