Mánudaginn 31. maí verður starfsdagur við Barnaskólann á Eyrarbakka og Stokkseyri og engin kennsla af þeim sökum. Hefðbundin kennsla verður 1. og 2. júní en í kjölfarið verða uppbrotsdagar. Dagskrá þeirra má sjá hér að neðan:
Vordagskrá 2021 – skipulag yngra stigs
Fimmtudagurinn 3. júní – Ferða- og forvitnidagurinn
08:15 Bekkjarfundur í umsjónarstofu.
08:35 Nemendur yngra stigs fara í vettvangsferð á Þingvelli. Markmið ferðarinnar er m.a. kynning á íslenskri náttúru og landmótun, Íslandssaga, félagsfærni með leikjum og samveru.
09:45 Ávaxtastund og leikir
10:45 Heimsókn í Ljósafossvirkjun
11:45 Hádegisverður/nesti/leikir – þeir sem eru í mataráskrift fá nesti. Aðrir þurfa að taka með sér nesti.
12:45 Bekkjarstofur – Dagurinn tekinn saman og næsti dagur skipulagður
13:00 Skóladegi lýkur.
Föstudagurinn 4. júní – Hinn ferða- og forvitnidagurinn
08:15 Nemendur yngra stigs fara í hjóla- og gönguferðir í nærumhverfi. Hver umsjónarkennari skipuleggur. Fjaran, sveitin, söfn, kennileiti heimsótt. Kennarar verði tilbúnir með skipulag um hádegi á þriðjudag.
12:00 Hádegismatur á Stokkseyri
12:35 Bekkjarstofur – Dagurinn tekinn saman og næsti dagur skipulagður
13:00 Skóladegi lýkur
Mánudagurinn 7. júní – Umhverfisdagurinn
08:15 Nemendur fá umhverfisfræðikennslu í umsjónarstofu. Fræðslupakki útbúinn, kennarar velja úr honum efni við hæfi hvers bekks. Markmiðið er að vinna með hugtök s.s. sjálfbærni, orkugjafa, endurvinnslu, mengun, samgöngur, heimsmarkmið, heilsa og vellíðan.
09:55 Nærumhverfishreinsun. Nemendur ganga um þorpin og plokka rusl.
12:00 Hádegismatur á Stokkseyri
12:35 Bekkjarstofur – Dagurinn tekinn saman og næsti dagur skipulagður
13:00 Skóladegi lýkur
Þriðjudagurinn 8. júní – íþrótta- og leikjadagurinn
08:15 Bekkjarstund og undirbúningur
09:55 Leikjadagur yngra stigs og unglingastigs. Markmiðið er að kynna nemendum sígilda útileiki s.s. Fallin spýta, brennó, stórfiskaleikur, Teygjutvist o.fl. Einnig að efla samvinnu og samveru stiganna og gera eldri nemendur ábyrga og virkar fyrirmyndir með því að taka þátt í stjórnun leikja.
11:00 Járnkrakkinn í BES
12:00 Hádegismatur á Stokkseyri – grill fyrir alla
12:35 Bekkjarstofur – Dagurinn tekinn saman
13:00 Skóladegi lýkur
Vordagskrá 2021 – skipulag unglingastigs
Fimmtudagurinn 3. júní – Umhverfis og nærumhverfisdagurinn
08:15 Nærumhverfishreinsun. Nemendur ganga um þorpið og plokka rusl.
09:45 Kaffihlé
10:15 Skólabíll á Stokkseyri
10:30 Kayakar á Stokkseyri
12:00 Hádegismatur á Stokkseyri
12:35 Bekkjarstofur – Dagurinn tekinn saman
13:00 Skóladegi lýkur
Föstudagurinn 4. júní – Ferða- og forvitnidagurinn
08:15 Nemendur eldra stigs fara í vettvangsferð í Þrastarskóg
10:30 Sund á Borg í Grímsnesi
11:45 Hádegismatur á Borg
13:00 Skóladegi lýkur
Mánudagurinn 7. júní – Hinn ferða- og forvitnidagurinn
08:15 Nemendaþing – skólasýn
10:00 Nemendur unglingastigs fara í hjóla- og gönguferðir í nærumhverfi. Hver umsjónarkennari skipuleggur. Fjaran, sveitin, söfn, kennileiti heimsótt. Kennarar verði tilbúnir með skipulag um hádegi á þriðjudag.
12:00 Hádegismatur á Eyrarbakka
12:35 Skóladegi lýkur