Árshátíð Barnaskólans á Eyrarbakka og Stokkseyri verður haldin í skólahúsinu á Stokkseyri fimmtudaginn 26. mars. Hátíðin hefst kl. 09:00 með hátíðardagskrá á sviði og síðan verður kaffisala 10. bekkinga að henni lokinni. Nemendur mæta samkvæmt stundaskrá í skólann í betri fötunum. Eftirfarandi skipulag verður á árshátíðinni:
Allir bekkir yngra stigs verða með verða með atriði á sviði. 10. bekkur sér um kaffisölu í Skruggudal. Áætluð heimferð er kl. 13.15. Daginn eftir árshátíðina mæta nemendur í skólann samkvæmt stundaskrá. Dagurinn verður notaður til að ganga frá eftir árshátíðina og föndra fyrir páskahátíðina.
Eftir páska mæta nemendur í skólann þriðjudaginn 7. apríl klukkan 8.15.
Í páskavikunni verður skólavistin opin mánudag, þriðjudag og miðvikudag.
Foreldrar og aðrir ættingjar velkomnir – Kaffi og kökur kr. 500 kr. frítt fyrir yngri börn.
Kveðja,
Nemendur og starfsfólk
Barnaskólans á Eyrarbakka og Stokkseyri