Kæru forráðamenn!
Miðvikudaginn 10. febrúar, ÖSKUDAGINN, verður ýmislegt til gamans gert hér í skólanum. Kötturinn sleginn úr tunnunni og dansað örlítið! Að venju verður skóladagurinn ögn styttri og lýkur hjá öllum kl. 13.15. Þetta gefur öllum tækifæri til að eiga skemmtilegan dag og ferðast á milli staða og syngja fyrir hina og þessa!
Kær kveðja !
Starfsmenn Barnaskólans á Eyrarbakka og Stokkseyri.