Skák fyrir ungmenni

Fischersetrið á Selfossi, Austurvegi 21,  mun hafa opið hús fyrir grunnskólakrakka á laugardögum frá kl. 11:00 – 12:30, þar sem þeim gefst tækifæri til að hittast og tefla saman. Fyrsti tíminn var s.l. laugardag eða 30. janúar og er hugmyndin að þetta verði næstu átta laugardaga eða hvern laugardag á undan kennslu grunnskólabarna á sunnudögum í Fischersetri. Skákáhugamaðurinn Vilhjálmur Sörli Pétursson mun sjá um þessa laugardagstíma hjá Setrinu. Varðandi frekari upplýsingar vinsamlegast hringið í 894-1275 eða sendið tölvupóst á fishersetur@gmail.com

 

Fischersetrið á Selfossi