Foreldraviðtöl og starfsdagur

Kæru foreldrar og forráðamenn.

Fimmtudaginn 4. febrúar næstkomandi er starfsdagur í skólanum og föstudaginn 5. febrúar eru nemenda- og foreldraviðtöl. Þá fellur kennsla niður og boðað verður til viðtala um námsárangur nemenda. Viðtölin fara að þessu sinni fram með rafrænum hætti, boðið er upp á viðtöl í forritinu Teams eða símaviðtöl. Opnað hefur verið fyrir skráningu. Við óskum eftir því að foreldrar/forráðamenn skrái sig sem fyrst. Einnig þurfa foreldrar að senda umsjónarkennara tölvupóst um með hvaða hætti þeir kjósa að viðtalið fari fram, við mælumst til þess að viðtölin fari fram með rafrænum hætti.

Þegar forráðamenn hafa bókað viðtalstíma sendir umsjónarkennari þeim fundaboð þar sem fram kemur slóð á bókaðan fund. Við minnum á að nemendur skulu sitja fundinn með foreldrum/forráðamönnum.

 

Hér má sjá leiðbeiningar um hvernig skal bóka viðtal í Mentor:

https://www.youtube.com/watch?v=mEFYnJhJAsM 

 

Nánari upplýsingar veita umsjónarkennarar og stjórnendur skólans.

Bestu kveðjur,

Stjórnendur Barnaskólans á Eyrarbakka og Stokkseyri