Lesið með foreldrum í skólanum

Nemendur yngra stigs Barnaskólans á Eyrarbakka og Stokkseyri tóku foreldrana með sér í skólann nú í morgunsárið og buðu þeim upp á allskyns lestur. Bæði lásu nemendur og foreldrar saman, foreldrar fyrir nemendur og öfugt. Fjöldi foreldra mætti eða á fimmta tug foreldra og forráðamanna. Það var hún Hafdís bókasafnsfræðingur á skólabókasafninu sem átti hugmyndina að þessum skemmtilega viðburði. Þessa dagana eru nemendur og starfsmenn skólans að taka þátt í landsleiknum Allir lesa og er yngsta stigið sem stendur í fyrsta sæti í sínum flokki og miðstigið í öðru sæti í sínum flokki. Yndisleg stemning skapaðist í skólanum og nokkuð ljóst að svona viðburðir eru komnir til að vera í skólastarfi Barnaskólans.