Litlu jól og jólaleyfi

Föstudaginn 17. desember fara Litlu jól Barnaskólans á Eyrarbakka og Stokkseyri fram. Þau standa frá kl. 9 til kl. 10:30 en vegna samkomutakmarkana vegna Covid 19 fara Litlu jólin á unglingastigi (7. -10. bekkur) fram á Eyrarbakka og yngra stigi á Stokkseyri. Enginn sameiginlegur jóladansleikur fer fram, líkt og tíðkast hefur. Jólahelgileikur í flutningi 4. bekkjar verður sendur út á FB síðu bekkjarins fyrir foreldra og forráðmenn, aðrir bekkir fá að sjá helgileikinn á skjá í stofum. Að loknum Litlu jólum fara nemendur  í jólaleyfi. Kennsla hefst á nýju ári þriðjudaginn 4. janúar samkvæmt stundatöflu. Skólabíllinn ekur á Litlu jólin sem hér segir:

Frá skóla á Stokkseyri að skóla á Eyrarbakka 8:30 Hringur á Stokkseyri og Eyrarbakka
Frá skóla á Eyrarbakka að skóla á Stokkseyri 8:45
Frá skóla á Eyrarbakka að skóla á Stokkseyri 10:30
Frá skóla á Stokkseyri  að skóla á Eyrarbakka 10:45 Hringur á Eyrarbakka

Starfsmenn Barnaskólans vilja þakka nemendum, forráðamönnum og samstarfsaðilum mikið og gott samstarf á árinu sem er að líða og um leið óska öllum gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári.

Starfsmenn BES