Skemmtileg heimsókn og hlý gjöf

Um daginn fengum við dásamlega heimsókn sem gladdi okkur öll! Með heimsókninni barst stór poki, troðfullur af fallegu garni í allskonar litum – algjör litadýrð sem kveikir strax hugmyndir og sköpunargleði.

Gefandinn var hún Hafrún Hermannsdóttir á Eyrarbakka, sem var svo yndisleg að færa okkur þessa nytsamlegu og hlýju gjöf. Við erum henni afar þakklát fyrir hugulsemina og stuðninginn 💛

Takk kærlega fyrir okkur, Hafrún – þetta mun svo sannarlega nýtast vel og gleðja marga!