Á fimmtudaginn síðastliðinn fóru nemendur í 7.-10. bekk í langþráða skíðaferð í Bláfjöll. Þrátt fyrir smá úða létu nemendur það ekki hafa áhrif á sig og skemmtu sér vel. Það var greinilegt að allir voru staðráðnir í að njóta útiverunnar og samverunnar til fulls.
Veðrið hefur verið ansi óútreiknanlegt upp á síðkastið, svo við vorum sérstaklega glöð að ná þessum degi og komast í ferðina.
Ferðin heppnaðist afar vel og nemendur voru skólanum til mikils sóma.
Við hvetjum ykkur til að kíkja á Facebook-síðu skólans þar sem má sjá fleiri skemmtilegar myndir frá deginum.

