Námsmat og annaskil
Kæru foreldrar og forráðamenn Í þessari viku fer fram námsmat fyrir haustönnina. Hjá 7. – 10. bekk verða þrír formlegir prófadagar, miðvikudaginn 7. nóv., fimmtudaginn 8. nóv. og föstudaginn 9. nóv. og verða tvö próf á dag samkvæmt prófatöflu. Nemendur mæta í skólann á venjulegum tíma þessa daga og fara heim að prófum loknum. Kennsla […]
Akstur heim vegna veðurs!!
Vegna veðurs verður öllum nemendum ekið heim í dag! Byrjað er að aka nemendum 1. – 6. bekkjar heim og síðan verður nemenduum á unglingastigi ekið heim! Stjórnendur!
Breytt dagskrá á morgun miðvikudag 31. okt.
Kæru forráðamenn Miðvikudaginn 31. október fara allir starfsmenn skólans á málþing sem haldið er í Fjölbrautarskóla Suðurlands. Málþing þetta er fyrir alla starfsmenn sem starfa í leik- og grunnskólum Árborgar. Málþingið hefst kl. 13.00 Af þessum sökum lýkur skóla að loknum hádegisverði eða kl. 12.35 og verður nemendum ekið heim þá. Skólavistin verður opin frá […]
Afmælissýningin um helgina!
Sýning í tilefni 160 ára afmælis Barnaskólansá Eyrarbakka og Stokkseyri verður opin frá 11.00 – 14.00 laugardaginn 27. október og sunnudaginn 28. október. Kaffi verður á könnuni! Sagt er frá sýningunni á heimasíðu sveitarfélagsins arborg.is Hvetjum við alla velunnara skólans til að koma og rifja upp söguna! Starfsfólk Barnaskólans á Eyrarbakka og Stokkseyri!
Afmælishátíð í tilefni 160 ára afmælis skólans
Fimmtudaginn 25. október verður afmælishátíð í Barnaskólanum á Eyrarbakka og Stokkseyri. Dagurinn hefst með því að nemendur vinna að lokaundirbúningi fyrir afmælishátíðina sem hefst síðan með formlegri setningu í skólanum á Eyrarbakka kl. 10:05. Nemendur frá Stokkseyri fara með skólabíl á Eyrarbakka kl. 9:45. Eftir að þau hafa skoðað skólann á Eyrarbakka og afmælissýninguna halda […]
