Matseðill

Matseðill

Matseðill

Matseðill

Matseðill

Matseðill

Fjaran – vefur nemenda BES og Barnabæjarvefur

By Guðrún Björg Aðalsteinssdóttir | 5. apríl 2012

Við viljum endilega vekja athygli ykkar á FJÖRUNNI, vef nemenda BES. Tengill inn á hana er hér á síðunni. Hópur nemenda undir stjórn Fríðu vinnur við að uppfæra hana. Einnig er að opnast vefur vegna Barnabæjar en hann verður hér í öllu sínu veldi í vor! 😎 Stjórnendur

Fuglamyndir frá Alex Mána í 9. bekk

By Guðrún Björg Aðalsteinssdóttir | 4. apríl 2012

Alex Máni Guðríðarson, nemandi í 9. bekk skólans sýnir fuglamyndir í Dagskránni í dag.  Þetta eru glæsilegar myndir og hvet ég alla til að skoða þetta. Til hamingju með þetta Alex Máni! Starfsmenn BES.

Skólinn hefst þriðjudaginn 10. apríl

By Guðrún Björg Aðalsteinssdóttir | 3. apríl 2012

Skólinn hefst skv. stundarskrá þriðjudaginn 10. apríl. Er þá komið að síðustu lotunni á þessu kennsluári.  Vorskólinn fyrir verðandi fyrstu bekkinga verður upp úr miðjum maí, dagarnir hafa ekki verið nákvæmlega settir niður. Barnabær verður 4. – 7. júní og eru þeir foreldrar sem áhuga hafa á því að vinna með okkur þar hvattir til að […]

Nemendur sýna á Páskasýningu Byggðasafns Árnesinga

By Guðrún Björg Aðalsteinssdóttir | 30. mars 2012

Páskasýning Byggðasafns Árnesinga verður í Húsinu á Eyrarbakka laugardaginn 31. mars og annan í páskum. Teikningar sem nemendur skólans hafa teiknað af safngripum verða sýndar í kvistherbergi Hússins  Viljum við hvetja alla til að skoða sýninguna! Starfsfólk BES

Glæsileg árshátíð í gær!

By Guðrún Björg Aðalsteinssdóttir | 30. mars 2012

Árshátíð BES var haldin í gær í húsnæði skólans á Stokkseyri. Fjölmenni var er skólastjóri setti hátíðna kl. 14.00. Að loknu stuttu ávarpi tóku kynnar hátíðarinnar þau Eyþór Atli og Hulda við og stýrðu árshátiðinni með glæsibrag allt til loka. Sú nýbreytni var tekin upp að bekkir sem voru oddatölubekkir voru með atriði en hinir […]