Kynningadagar á Eyrarbakka 23. -24. ágúst 2016
Þriðjudag og miðvikudag í þessari viku verður óhefðbundið nám stundað á unglingastigi á Eyrabakka. Það þýðir að nemendum verður skipt í hópa, þvert á bekki og árganga frá því kl. 8:15 á morgnana til kl. 12:30. Þeir munu þar sitja fræðslu um forvarnir, félagsmál, námstækni, reglur og skyldur ásamt því að stunda hópefli. Engin þörf […]
Skólasetning haustið 2016
Skólasetning skólaársins 2016-2017 í Barnaskólanum á Eyrarbakka og Stokkseyri verður mánudaginn 22. ágúst n.k. Setning starfsárs yngra stigs, 1. – 6. bekkjar, fer fram í húsnæði skólans á Stokkseyri kl. 9:00 og eldra stigs, 7. – 10. bekkjar, fer fram í húsnæði skólans á Eyrarbakka kl. 11:00. Stjórnendur
Sumarleyfi og skólasetning
Stjórnendur og annað starfsfólk Barnaskólans fara í sumarleyfi 24. júní. Skrifstofa skólans opnar fimmtudaginn 4. ágúst n.k. Skólasetning verður mánudaginn 22. ágúst. Nánari tímasetningar verða auglýstar síðar. Starfsmenn Barnaskólans á Eyrarbakka og Stokkseyri óska öllum gleðilegs sumars með þökkum fyrir fráfært skólaár 2015-2016.