Í kvöld, fimmtudaginn 27. febrúar kl. 19:30 stendur forvarnarteymi Árborgar, BES og foreldrafélagið fyrir fræðslufyrirlestri um internet- og nýmiðlanotkun í samstarfi við samtökin SAFT og Heimili og Skóla. Þættir eins og neteinelti, netsamskipti og hinir ýmsu samskiptamiðlar verða skoðaðir ásamt mörgu öðru. Þennan dag munu nemendur í 6. og 7.bekk fá fræðslu um þessi mál.
Einnig mun Elís Kjartansson lögreglufulltrúi mæta á fundinn með fræðsluerindi um fíkniefni. Erindi sitt kallar hann gras og aðrar pælingar.
EKKI láta þetta tækifæri framhjá þér fara…………Við hvetjum ALLA foreldra sem eru með börn á grunnskólaaldri að mæta.
Fundurinn verður í skólanum á Stokkseyri kl.19:30 – 21:30
Kaffi og kex
Sjáumst í kvöld 😛