Skólahreysti 2026

Skólahreysti er liðakeppni milli nemenda í 9. og 10. bekk grunnskóla í hreysti og hefur á undanförnum árum fest sig í sessi sem ein af kraftmestu og vinsælustu keppnum fyrir unglinga á Íslandi. Keppnin sameinar styrk, úthald, snerpu og liðsheild. Skólahreysti hefur vakið gríðarlega athygli um land allt frá því fyrsta keppnin var haldin árið 2005. Hugmyndin að baki Skólahreysti kom frá þeim Andrési Guðmundssyni og Láru Berglindi Helgadóttur, og keppnin hefur verið í stöðugri þróun síðan.
Forkeppni BES fór fram þriðjudaginn 28. apríl og stemningin var hreint út sagt frábær! Keppendurnir í forkeppninni stóðu sig með prýði og sýndu seiglu, elju og gleði. Nemendur og starfsmenn á unglingastigi hvöttu keppendur áfram af miklum krafti, stemning var vægast sagt góð. Að keppni lokinni fengu allir nemendur og starfsmenn að prófa hreystibrautina, sem vakti lukku.
Liðsmenn BES í Skólahreysti 2026:

Miðvikudaginn 6. maí var síðan komið að riðlakeppninni okkar í Skólahreysti. Keppnin fór fram í Íþróttamiðstöðinni Varmá í Mosfellsbæ og var í beinni útsendingu á RÚV og hægt er að horfa á hana á sarpinum á vef RÚV fyrir þá sem vilja upplifa spennuna aftur.
Nemendur í Skólahreystivali hafa lagt hart að sér í vetur og sýnt bæði dugnað, þrautseigju og frábæran liðsanda. Það var því strax ljóst eftir undankeppnina að mikill áhugi væri meðal nemenda á unglingastigi að fylgja liðinu okkar á stóru keppnina og styðja þau af krafti.
Leigð var rúta fyrir hópinn og mætti stuðningslið BES galvaskt til leiks, klætt í appelsínugulu frá toppi til táar. Stemningin var stórkostleg bæði á keppnisstaðnum og í rútunni til og frá Mosfellsbæ þar sem söngur, stuð og hvatning ómuðu allan daginn. Nemendur stóðu sig frábærlega sem stuðningslið og sýndu sannkallaðan BES anda.
Foreldrafélagið var einnig með sölu á glæsilegum appelsínugulum BES bolum sem vöktu mikla lukku og settu sannarlega svip sinn á stemninguna. Það var virkilega gaman að sjá hversu margir mættu í litum skólans og sameinuðust í stuðningi við liðið okkar.
Við viljum færa Tokic sérstakar þakkir fyrir að halda utan um skipulag, æfingar og undirbúning liðsins af miklum metnaði og elju. Tokic hefur stýrt Skólahreystivali í vetur og skapað jákvæða og hvetjandi stemningu í kringum þessa skemmtilegu keppni.
Við erum stolt af ykkur, Skólahreystilið BES, takk fyrir að standa ykkur svona vel, sýna liðsheild og vera flottar fyrirmyndir!
Við hvetjum alla til að kíkja á Facebook-síðu skólans þar sem má sjá fleiri myndir frá þessum skemmtilega og eftirminnilega keppnisdegi.