Nú styttist í lok skólaársins og framundan eru ánægjuleg tímamót hjá nemendum Barnaskólans á Eyrarbakka og Stokkseyri.
Útskrift 10. bekkjar fer fram miðvikudaginn 10. júní kl. 15:00 í sal skólans á Stokkseyri.
Athugið að engar rútuferðir verða í boði í tengslum við útskriftina.
Skólaslit 1.-9. bekkjar fara fram fimmtudaginn 11. júní í sal skólans á Stokkseyri.
Foreldrar, forsjáraðilar og aðrir aðstandendur eru hjartanlega velkomnir að mæta og fagna með nemendum.
Kl. 09:00: 1.-6. bekkur
Rúta fer frá skólanum á Eyrarbakka kl. 08:45 og til baka frá Stokkseyri kl. 09:30.
Rúta fer frá skólanum á Eyrarbakka kl. 08:45 og til baka frá Stokkseyri kl. 09:30.
Kl. 10:00: 7.-9. bekkur
Rúta fer frá skólanum á Eyrarbakka kl. 09:45 og til baka frá Stokkseyri kl. 10:30.
Rúta fer frá skólanum á Eyrarbakka kl. 09:45 og til baka frá Stokkseyri kl. 10:30.
Við hlökkum til að sjá nemendur og fjölskyldur þeirra á þessum fallegu tímamótum þegar enn einu skólaári lýkur.

