Kæru foreldrar/forráðamenn.
Við Barnaskólann á Eyrarbakka og Stokkseyri starfa nú tvö viðbragðsteymi vegna COVID19. Annað teymið starfar á starfsstöð á Stokkseyri og hitt á Eyrarbakka. Teymin funda daglega og saman eftir þörfum. Teymið á Stokkseyri skipa Magnús J. Magnússon skólastjóri, Sigríður Pálsdóttir deildarstjóri, Karl Óskar Svendsen húsvörður,Vigdís Unnur Pálsdóttir ritari og Ágústa Baldursdóttir matráður. Teymið á Eyrarbakka skipa Páll Sveinsson aðstoðarskólastjóri, Sædís Ósk Harðardóttir deildarstjóri, Ragna Berg kennari og Fríða Rut Stefánsdóttir ritari.
Í ljósi þeirra aðstæðna sem nú eru uppi vegna COVID19 hafa viðbragðsteymi BES gripið til eftirfarandi ráðstafanna og aðgerða er lúta að skólastarfi:
- Breytingar verða á starfsemi mötuneyta, bæði á Eyrarbakka og Stokkseyri. Þær verða m.a. þessar:
- Nemendum verða afhentir diskar og hnífapör og þeim skammtaður matur.
- Salatbar verður lokað þar sem hann er opinn og óvarinn.
- Komið verður upp vatnstönkum fyrir nemendur og starfsmenn. Við óskum eftir því að nemendur komi með vatnsbrúsa í skólann til að minnka líkur á yfirborðssmiti.
- Nemendur geta ekki notað samlokugrill eða örbylgjuofna, þau tæki hafa nú þegar verið fjarlægð.
- Nemendum verður skipt í hópa í mötuneyti til að minnka nálægð á matmálstímum. Fjöldatakmarkanir nemenda verða í frímínútum og matartímum. Útbúnar verða tímarúllur þar sem nemendum verður skipt upp í hópa sem fara á mismunandi tímum í frímínútur og matarhlé.
- Breytingar á fyrirkomulagi kennslu á unglingastigi á Eyrarbakka.
- Hingað til hafa nemendur ferðast á milli kennslustofa að sækja faggreinakennslu. Nú verður breyting á, bekkir verða í sínum heimastofum og munu faggreinakennarar fara á milli kennslustofa. Þetta fækkar sameiginlegum snertifötum nemenda.
- Skólaborð verða færð í sundur í kennslustofum til að draga úr nálægð.
- Fjöldatakmarkanir verða settar á setu nemenda í sófum í frímínútum, nemendum gert enn frekar kleift að dreifa sér um skólahúsnæðið.
- Óskað hefur verið eftir auknum þrifum á húsnæði skólans, hurðarhúnar og sameiginlegir snertifletir verði sérstaklega vel þrifnir og sótthreinsaðir daglega. Sprittbrúsum hefur verið komið fyrir í mötuneytum, kaffistofum og í kennslurýmum.
- Íþrótta- og sundkennsla fellur niður. Íþrótta- og sundkennarar munu sinna kennslu í þeim greinum með öðrum hætti í húsnæði skólans.
- Starfsmannafundum verði stillt í hóf.
- Aukið upplýsingaflæði verður bæði innan skólans og til nærsamfélags.
Þar sem um fordæmalausar aðstæður er að ræða í íslensku samfélagi óskum við eftir að nemendur, foreldrar og starfsmenn skólans leggist á eitt um að framfylgja þessum aðgerðum með öryggi og heilsu okkar allra að leiðarljósi.
Nánari upplýsingar veita stjórnendur.
Stjórnendur og starfsmenn Barnaskólans á Eyrarabakka og Stokkseyri